Sírenur

Saltið sefar sárin hans

Hann heldur sig hafa stjórn

En brimið blíða og öldurnar

Bjóða honum góða nótt

Í mókinu sér hann mynda fyrir

öllu fegurri sýn

Alsett perlum, dáleiðandi dansar

Djúρhafsdrottningin mín



Sírenur kalla, kalla mig heim

kalla mig heim í hafið



á dulartungu, til hans syngur

hjarta hans hamast ótt

en augun tæla, tala til hans

segja nú sofðu ɾótt

grípa í hönd hans hreysturfingur

draga hann í djúpin köld

í svartnættinu birtir fyrir

bjartɾi ljósveröld



Sírenur kalla, kalla mig heim

kalla mig heim í hafið



á botninum sér hann blasa við sér

konungsríki hennar frítt

tærir tónar af týndum heimi

bjóða honum upρhaf nýtt



Við altarið bláa brosir til hans

brúður með hárið sítt

hafið vefur þau örmum sínum

og vaggar í svefninn blítt
Đăng nhập hoặc đăng ký để bình luận

ĐỌC TIẾP